100 ára


Frón

fagnar 100 ára afmæli


Frá 1926 hefur Frón verið hluti af íslenskri matarhefð og daglegu lífi landsmanna.

Úrval vandaðra verðlauna í boði á afmælisdaginn

Weber ferðagrill - JBL hátalari - Stanley brúsi - Fuji instax myndavél - The North Face duffel taska


100 ára



Frón

fagnar 100 ára afmæli

Frá 1926 hefur Frón verið hluti af íslenskri matarhefð og daglegu lífi landsmanna.

100 ára

Frón fagnar 100 ára afmæli


Kexverksmiðjan Frón er elsta kexverksmiðja landsins og verður hundrað ára afmæli hennar fagnað í sumar. Frón hóf starfsemi 14. júní 1926 í tveimur herbergjum á Njálsgötu 10 en óhætt er að segja að umsvifin hafi aukist jafnt og þétt síðan þá.

Í upphafi voru allar vélar handknúnar hjá Fróni en nú fer framleiðslan fram í stórri verksmiðju á Blikastaðavegi.

Íslensk kexhefð

Uppskriftir


Frá lausasölu til nútímaumbúða

Kex var upphaflega selt í lausasölu, geymt í tré- eða blikkkössum. Fyrstu tegundirnar voru kringlótt matarkex, en fljótlega bættust við ferkantað mjólkurkex og kremkex. Eftir stríð komu síðan nýjar tegundir, meðal annars súkkulaðihúðað kex. Með tímanum þróuðust umbúðirnar og lausasalan vék fyrir nútímalegri og vandaðri pakkningum.

Af hverju er kremkex oft kallað Sæmundur í sparifötunum?

Kexverskmiðjan Esja framleiddi fyrr á árum mjög vinsælt vanillukex, en þáverandi forstjóri var Sæmundur Ólafsson. Umrætt kex var formlega nefnt í höfuðið á honum, Sæmundur, og gekk í daglegu tali undir því nafni. Þegar Esja sameinast Frón árið 1970 heldur þessi venja áfram. Kremkexið frá Frón fær þetta sama Sæmundar-viðurnefni og sparifötunum bætt við í ljósi þess að kremkex er kannski aðeins meira spari en gamla vanillukexið - sem sagt Sæmundur í sparifötunum.

Vörumerkin

Kex frá Frónkex, úrval sem gleðja bragðlaukana

Instagram

Fylgstu með okkur á Instagram og fáðu úrval uppskrifta

Frónkex,

Blikastaðavegur 2,

112 Reykjavík, Ísland

+354 535 4000