Frón framleiðir aðeins
transfitusnauð matvæli

Fimmtudagur, 16. febrúar 2012

„Stórir komu skarar, af álfum var þar nóg“

Álfur frá Frón er brögðóttur dvergur sem getur galdrað fram hvers kyns ljúf brögð. „Trúir þú á álfasögur,“ spurði Rúrik Haraldsson í auglýsingunni um árið sem gjarnan er sýnd um jól og áramót og er fyrir löngu orðin klassík. En trúir íslenska þjóðin á álfa? Í júlí 1998 sló DV upp frétt ár forsíðu sem hefur ábyggilega komið mörgum í opna skjöldu. Þar kom fram að meirihluti þjóðarinnar svaraði því játandi þegar spurt var um trúna á álfa. Við hjá Frón trúum svo sannarlega á álfa en hjá okkur erum við með tvær tegundir af kextegundinni Álfi, en hann er dvergur úr Hávamálum og er þar lýst sem brögðóttum og jafnvel göldróttum, líkt og álfa er háttur!

 
Mánudagur, 16. janúar 2012

Ekkert iðnaðarsalt í afurðum Frón

Eins og eðlilegt er hefur umræðan um notkun iðnaðarsalts til matvælaframleiðslu tröllriðið fjölmiðlum síðustu daga. Að nota iðnaðarsalt í afurðir ætlaðar mönnum er brot á matvælalöggjöfinni og lítur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur því málið alvarlegum augum. Frón notar að sjálfsögðu aðeins vottað hráefni í framleiðsluna og geta Íslendingar gengið að því vísu að gæði Frónkexins eru vís, eins og þau hafa verið síðustu áratugi. 

 
Frónkex í ferðalagið
Taktu Frónkex með í ferðalgið
Taktu með þér Frónkex í ferðalagið

Það hefur stundum verið sagt að hamingjan sé ekki endastöð heldur ferðalag og það teljum við hjá Frón líka. Það er nefnilega þessvegna sem Frón kex kemur við sögu á hverjum degi. Upplifðu hamingjuna, staldraðu við. Prófaðu Frón Póló í sjávarmálinu eða Cafe Noir með morgunkaffinu.  Mundu líka fyrir ferðalagið að hægt er að kaupa Frónkex í magnpakkningum.

Frónkex í vinnuna
Taktu með þér Frónkex í vinnuna

Kínverskt máltæki segir eitthvað á þá leið að sá sem vaknar til vinnu á hverjum degi fyrir sólarupprás muni uppskera ríkulega. Með miklum dugnaði og eljusemi er ýmislegt hægt. En vinnan er skemmtilegri ef maður á nóg til af Frónkexi. Deildu Frónkexinu með vinnufélögunum. Hvort sem þú vilt vinna með gróft Mjólkurkex, súkkulaði Kremkex eða Súkkulaði Sóló í farteskinu þá finnur þú kex hjá Frón.

Frónkex með kvöldkaffinu
Fáðu þér Frónkex með kvöldkaffinu

Gott kvöld er ósk sem við iðulega berum upp. Það er fátt huggulegra en að slappa af að kvöldi til, fá sér ljúffengan kaffibolla og uppáhaldskexið þitt frá Frón með. Kexið upphefur kaffistundina. Prófaðu bara að dýfa Mjólkurkexi í kaffið eða Kósí kexi. Súkkulaði kexið er einnig ljúffengt með kaffinu þó dýfingunum sé sleppt.


Frónkex í baksturinn
Notaðu Frónkex í baksturinn

Frónkex hentar ljómandi vel í baksturinn. Hefurðu prófað að búa til ostaköku með hafrakexi frá Frón í botninum? Kíktu á vefinn hjá okkur og sjáðu hvort þú finnir ekki einfalda uppskrift sem er þér að skapi. Þú getur líka notað Morgunkex í botninn og maulað piparkökur á meðan á bakstrinum stendur.


þekkir þú Álf?

Frón styður Rauðakross Íslands
Álfur kremkex. Vanilludvergar og súkkulaðidvergar

Álfur er dvergur. Hann er góður þó hann sé eilítið brögðóttur. Hann er líka rammgöldróttur og getur galdrað fram fleiri dverga sem luma á ýmsum góðum brögðum. Jafnvel súkkulaði eða vanillubragði ef vel liggur á þeim.

Dvergar láta yfirleitt lítið fyrir sér fara. Þeir kunna ágætlega við sig í klettum og steinum en þar nýta þeir sér handlagni sína til að búa til göng og glæsilega sali.